Síðastliðið vor keypti bandarísk vinkona mín sér far til Íslands og
langaði til að sjá þetta land þar sem réttindi hinsegin fólks hafa verið talin
í hávegum höfð. Þessi kona var á sömu vegferð og ég var fyrir tveimur
áratugum. Skömmu eftir að hún hafði keypt sér farmiðann til Íslands með Alaskan
Airlines og Icelandair urðu miklar breytingar í lífi hennar. Hún fékk
viðurkennda ósk sína um breytingu á nafni og kynferði hjá yfirvöldum vestur í
Bandaríkjunum og hún ætlaði að breyta farmiðanum sínum sem hafði verið keyptur
á gamla nafninu:
Þá kom babb í bátinn. Umboðsaðili Icelandair neitaði að breyta miðanum þar sem
um væri að ræða miða þar sem ekki væri hægt að breyta tilhögun ferðar.
Erindið barst mér og þótt tengdasonur minn
sé náfrændi forstjórans, taldi ég það vera of langt gengið í
dramatíkinni að byrja á honum og vildi frekar eiga hann uppi í bakhöndinni. Ég talaði því við skólasystur mína og vinkonu
sem benti mér á hvaða fólk væri best að tala við hjá Icelandair. Ég hafði síðan
samband við viðkomandi framkvæmdastjóra með tölvuskeyti í gær (föstudag) og benti honum á breytta
stöðu konunnar í samfélaginu og þörf hennar fyrir að ferðast undir réttu nafni.
Það liðu ekki margir klukkutímar uns hann svaraði mér með tölvuskeyti og
tilkynnti mér að hann hefði virkjað markaðsdeildina í málinu. Einungis örfáum
klukkustundum síðar fékk bandarísk vinkona mín símtal frá Icelandair þar sem
hún var beðin afsökunar á vandræðum sínum og málið leyst á farsællegasta hátt
fyrir alla aðila.
Á sama tíma var ég í Gleðigöngu hinsegin daga í Reykjavík og fagnaði því
tvöfalt eftir að ég kom heim. Með þessum frábæru viðbrögðum Icelandair eru þau
enn og aftur að sanna hið gamla orðspor sitt frá sjöunda áratug síðustu aldar
þegar Loftleiðir gengu undir gælunafninu Hippie Air vegna lágra fargjalda og
góðrar þjónustu. Nú er Icelandair eiginlega Queer Air með jákvæðum og
fordómalausum viðbrögðum sínum gagnvart hinsegin fólki.
Takk Icelandair!
laugardagur, ágúst 10, 2013
10. ágúst 2013 - Góð þjónusta hjá Icelandair!
Birt af Anna Kristjánsdóttir kl. 23:13
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
Frábært. þetta Skiftir auðvitað máli.
SvaraEyðaÞað er bara til ein Anna Kristjáns, þú ert frábær.
SvaraEyðaFlott hjá þeim.
SvaraEyðaGaman að lesa þetta. Hef alltaf verið tryggur og ánægður viðskiptavinur Icelandair's.
SvaraEyðaGott flugfélag!
Haukur Kristinsson