Já, takk Ólafur Ragnar Grímsson fyrir þín tuttugu ár á forsetastól. Við
hittumst einungis einu sinni, þá við jarðarför náins frænda þíns Ólafs Þórðar
Friðrikssonar Hjartar bókasafnsfræðings og góðs vinar míns. Við vorum sjaldnast
sammála þótt við værum lengi í sama flokki. Þegar þú varst kosinn formaður
Alþýðubandalagsins kaus ég að draga mig í hlé og hætti störfum fyrir þann ágæta
flokk.
Síðar flutti ég til Svíþjóðar og sinnti ekki borgaralegum skyldum mínum við
Ísland í nokkur ár, en þegar ég kom til baka varstu í framboði til forseta
Íslands. Þú fékkst ekki mitt atkvæði en vannst samt. Ég varð að sætta mig við
úrslitin og reyndi að sættast við þig eftir það. Það var ekki alltaf auðvelt,
en andstaða sameiginlegs andstæðings okkar sem sat á stól forsætisráðherra á
þeim tíma hjálpaði mér til að sætta mig við þig á þessum mikilvæga forsetastól.
Það var samt ekki auðvelt að sjá Framsóknarmann undir fölsku flaggi á
forsetastól.
Ég var samt ekki alltaf ósammála þér. Ég neyddist til að greiða þér atkvæði
mitt árið 2004, skömmu eftir að þú neitaðir fjölmiðlalögunum staðfestingar, ekki vegna þess að ég væri
hrifin af frumkvæði þínu, heldur því að þú varst að berjast við óhæfa
mótframbjóðendur og þar sem ég sat í kjörstjórn átti ég erfitt með hægrisinnuðu
kjósendurna sem hötuðu þig eins og pestina, en urðu síðar þinn besti stuðningur.
Síðar gerðir þú þér dælt við útrásarræningja, ekki aðeins rússneska oligarka
heldur og íslenska glæpamenn sem sumir hafa fengið sína dóma en alls ekki allir
sem settu Ísland á hausinn.
Svo kom hrunið og Icesave og allur sá pakki. Þú samþykktir fyrstu Icesave
lögin. Það var ekki mikil skynsemi í því, en Bretar og Hollendingar höfnuðu
samkomulaginu og því komst sá samningur aldrei í framkvæmd. Svo komu Icesave 2
og Icesave 3 sem þú hafnaðir hvorutveggja. Var það vel? Það lítur vel út á
pappírunum en hvernig kemur það út fyrir okkur vesalingana sem skuldum lán í
bönkum. Við erum enn að borga himinháa
grunnvexti af húsnæðislánunum okkar auk verðtryggingarinnar. Er það kannski
afleiðing af því að þú neitaðir að undirrita lögin sem þjóðin síðan hafnaði í
atkvæðagreiðslu? Ég veit ekki en það veit ég að ég er að greiða himinháa vexti
af húsnæðisláninu mínu auk verðtryggingar. Hið einasta sem ég get þakkað fyrir
er að ég gætti þess að reisa mér ekki hurðarás um öxl á sínum tíma og því komst
ég yfir þetta. En ég spyr, eiga okurvextirnir sem ég greiði af húsnæðisláninu
mínu orsök í höfnun á þriðja og síðasta Icesave saminingnum?
Nú ert þú búinn að kveðja okkur með drottningarviðtali þar sem þú hældir
sjálfum þér út í eitt. Um leið og þú ferð á eftirlaun mun Guðni Thorlacius
Jóhannesson taka við keflinu. Ég fagna honum í embætti forseta Íslands um leið
og ég kveð þig af forsetastóli.
Ég er kannski ekki alveg laus við þig. Mér þykir pínulítið vænt um þig eftir
öll þessi ár og ekki er síðra að vita að það eru einungis 60 metrar frá borholu
MG-6 að húsinu þínu í Mosfellsbæ og því möguleiki á því að við munum eiga
samskipti í framtíðinni í gegnum vinnuna mína.
Takk Ólafur Ragnar Grímsson fyrir störf þín á forsetastóli í tvo áratugi, góð
og kannski slæm, um leið og ég fagna nýjum forseta Íslands, Guðna Thorlacius
Jóhannessyni.
mánudagur, ágúst 01, 2016
1. ágúst 2016 - Takk Ólafur Ragnar Grímsson
Birt af Anna Kristjánsdóttir kl. 00:14
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
0 ummæli:
Skrifa ummæli