Í
síðustu viku janúar voru samþykkt lög frá Alþingi. Þetta voru engir lagabálkar
né umfangsmiklar aðgerðir. Einu orði var
bætt inn í tvær greinar hegningarlaganna, inn í 180. grein laganna þar sem
fjallað um að ekki megi mismuna fólki um þjónustu, sem og 233a grein þar sem kveðið er á um mismunun
á annan hátt. Þetta eina orð var kynvitund. Nú er óheimilt að neita fólki um
þjónustu af völdum þjóðernis þeirra, litarháttar, kynþáttar, trúarbragða,
kynhneigðar eða kynvitundar. Um leið er
gert refsivert að beita háði, rógi, smánun, ógnun eða á annan hátt vegna
kynvitundar á sama hátt og áður var gagnvart þjóðerni, litarhætti, kynþætti,
trúarbrögðum eða samkynhneigð.
Að bæta þessu eina orði inn í hegningarlögin nr 19 frá 1940 er ekki einungis
mikilvægt fyrir transfólk á Íslandi heldur lífsnauðsynlegt. Svipað orðalag er
þegar víða um Evrópu og talið gefa ákveðinn status um mannréttindi transfólks
sem víða hefur þurft að sæta ofsóknum, misþyrmingum og jafnvel morðum. Þetta
var ákvæðið sem vantaði til þess að Ísland teldist meðal fremstu þjóða Evrópu í
mannréttindum transfólks en nú er það komið til allrar Guðsblessunar.
Hatursglæpir og mismunum gagnvart transfólki eru engin nýlunda í heiminum.
Samkvæmt nýlegri skrá Evrópsku transgendersamtakanna (TGEU) hafa vel yfir
þúsund transmanneskjur verið myrtar í þeim ríkjum heimsins þar sem tekist hefur
að halda skrá yfir hatursglæpi á síðustu fimm árum og er þá ekki talið með
hundruð þúsunda misþyrminga eða hatursglæpa af öðru tagi.
Ísland er ekkert undanskilið þegar hatursglæpir gagnvart transfólki eiga sér
stað. Það hafa átt sér stað á Íslandi nokkur ljót dæmi um ofbeldi og misþyrmingar
vegna kynvitundar og sjálf hefi ég ekki alveg sloppið við háðið og ofbeldið
þótt það teljist vera minniháttar miðað við önnur dæmi á Íslandi. Með nýju
lögunum er hinsvegar hægt að skrá slíka glæpi sem hatursglæpi og það eitt
hjálpar mikið í baráttunni fyrir jafnrétti minnihlutahópa á Íslandi.
Frumvarpið var búið að vera nokkurn tíma í meðförum Alþingis. Við ræddum þessi
mál ítarlega þegar við unnum að frumvarpinu að réttarstöðu transfólks sem varð
að lögum 2012 og eftir lagasetninguna áttum við sem börðumst fyrir réttarbótum
til handa transfólki góð samtöl við stöku alþingismenn, þar á meðal Eygló
Harðardóttur núverandi félagsmálaráðherra sem lagði fram frumvarp svipaðs efnis haustið 2012 ásamt
þingmönnum annarra flokka.
Það er full ástæða til að þakka það sem vel er gert, þar á meðal því ágæta
fólki sem studdi þessa baráttu með vinnu sinni á Alþingi og þá sérstaklega
Eygló Harðardóttur, Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur, Svandísi Svavarsdóttur og
fleirum og á síðari stigum einnig Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra
sem lagði málið fram öðru sinni í síðasta ári og þá sem stjórnarfrumvarp. Þá
var og gleðilegt að sjá málið fá jafnvíðtækan stuðning og raun ber vitni þar
sem 53 alþingismenn greiddu því atkvæði sitt en einungis þrír sátu hjá við
lokaafgreiðslu frumvarpsins og ég fór að velta því fyrir mér eftir að hafa
lesið athugasemdir þeirra hvort þeir teldu að mannréttindi ættu að vera
söluvara.
Ég vona ekki, en orð þeirra og hjáseta særðu mig tilfinningalega, enda taldi ég
þau vera baráttumanneskjur fyrir mannréttindum.
laugardagur, febrúar 01, 2014
1. febrúar 2014 - Mannréttindi eru ekki söluvara
föstudagur, janúar 17, 2014
17. janúar 2014 - Eimskipafélag Íslands 100 ára
Ætli það hafi ekki verið haustið 1969 sem ég gerði fyrst tilraun til þess að komast að á skipum Eimskipafélags Íslands. Ég var 17 ára og kunni ekki alveg að hegða mér að hætti fullorðinna, hvað þá að sýna ráðningastjóranum Guðjóni Einarssyni, hinum ágætasta manni og miklum KR-ing nægilega virðingu enda fékk ég ekkert starfið í það skiptið. Rúmu ári síðar var Guðjón kominn á eftirlaun og Jón Magnússon lögfræðingur (Lögfr.tal 767) tekinn við starfinu. Þá leið ekki á löngu uns ég hóf fyrst störf hjá Eimskip, til að byrja með á Lagarfossi (II), en síðar á allnokkrum skipum félagsins og má segja að ég hafi lengstum haft einhver tengsl við félagið, sem dagmaður í vél, smyrjari, aðstoðarvélstjóri og vélstjóri allt frá 4. vélstjóra til yfirvélstjóra, en auk þess starfsmaður við eftirlit með frystigámum, á verkstæði og á skrifstofum.
Þótt ég hafi ekki verið samfellt hjá félaginu, fremur öðru hverju í gegnum árin, þá hafa tilfinningaleg tengsl við félagið og starfsfólk þess ávallt verið mikil sem og virðing fyrir félaginu og starfsfólki þess. Vissulega hefur ýmislegt gengið á í sögu Eimskipa og ekki alltaf jákvætt. Það má segja að ég hafi fylgst með félaginu og tekið þátt í rekstrinum er sól þess reis sem hæst, en fylgst með því úr fjarlægð með sorg í hjarta er niðurlægingin varð sem verst fyrir fáeinum árum síðan. Um leið var ég aldrei sátt við útflöggun skipanna, en þar var ekki einvörðungu Eimskip um að kenna, fremur klaufaskap íslenskra verkalýðsfélaga og Alþingis.
Að morgni 100 ára afmælis Eimskipafélags Íslands skrifaði ég status á Facebook þar sem ég óskaði Eimu gamla til hamingju með 100 ára afmælið. Ég var samstundis skotin í kaf eins og tvö skip Eimskipafélagsins í lok seinni heimstyrjaldar og menn mótmæltu mér harðlega þar sem félagið væri í raun nýtt eftir endurskipulag þess fyrir fáeinum árum, einn þeirra góður félagi sem sigldi með mér á Bakkafossi (II) jólin 1976. Ég er þessum mönnum ósammála. Ný kennitala er engan veginn nægileg ástæða til að afskrifa eitt fyrirtæki og sögu þess. Við vitum mörg dæmi um nýjar kennitölur án nokkurra breytinga í fyrirtækjum og stofnunum, stofnanir og fyrirtæki á borð við Landsbankann, Ríkisútvarpið og jafnvel Orkuveituna sem var sameinuð úr þremur stofnunum sem allar áttu sína merkilegu sögu hver fyrir sig. Eimskip var upphaflega stofnað til að annast flutninga til og frá útlöndum og sinnir þessu hlutverki sínu vel enn í dag. Starfsfólkið er hið sama áratug eftir áratug og þegar ég hefi leyst af á skipum félagsins á undanförnum árum hefi ég hitt fyrir fjölda fólks sem ég starfaði með á upphafsárum mínum hjá Eimskip fyrir rúmum fjórum áratugum og starfa þar enn, sum við sömu störf og forðum, vissulega eldri og reyndari. Hliðarspor í eigendasögunni koma þessu máli ekkert við, né heldur græðgisvæðingin sem heltók íslensku þjóðina um miðjan síðasta áratug. Starfsfólk Eimskips hélt áfram að vinna sína vinnu af trúmennsku og dugnaði eins og ekkert hefði í skorist þrátt fyrir alvarleg áföll í stjórn félagsins.
Á hundrað ára afmælinu er framtíðin ljós. Tvö ný skip eru í smíðum og verða afhent á þessu ári, vonandi koma tvö önnur skip og mun stærri fljótlega til að leysa af Goðafoss og Dettifoss enda eru þau farin að láta á sjá eftir barninginn í Norður-Atlantshafi síðasta áratuginn rétt eins og Selfoss og Brúarfoss sem senn verða leyst af af nýju skipunum. Annað mjög jákvætt við Eimskip er endurnýjun merkisins E með Í í gegnum í stað hakakrossins sem fylgdi félaginu frá upphafinu árið 1914 til tíunda áratugar síðustu aldar er tvö E og annað öfugt voru tekin upp sem merki félagsins. Megi merkið sem mun prýða stefni nýju skipanna verða leiðandi merki Eimskipafélags Íslands um ókomna tíð.
mánudagur, janúar 13, 2014
13. janúar 2014 - Risaskip
Það fer aldrei á milli mála þegar skipin frá Mærsk eru á ferðinni. Himinblár liturinn á skrokknum og rjómagul yfirbyggingin fara ekkert á milli mála né heldur sjöarma stjarnan í skorsteininum.
Með tilkomu netsins var auðveldara að fylgjast með þróun þessa skipafélags og hvernig þau voru í fararbroddi skipafélaga í smíði risastórra gámaskipa sem báru nærri tíu þúsund gámaeiningar (teu´s) hvert á árunum kringum 2004 og síðan enn stærri skip sem voru skráð geta borið 11.000 teu´s en gátu borið í reynd yfir 15.500 teu´s. Þessi glæsilegustu flutningaskip heimshafanna voru jafnframt síðustu risaskipin sem voru smíðuð í Danmörku þar sem óhappaskipið Emma Mærsk sem hét eftir nýlátinni eiginkonu stjórnarformanns Mærsk skipafélagsins var fyrst í röðinni árið 2006. Ég segi óhappaskip því meðan á smíðinni stóð varð alvarlegur bruni í yfirbyggingu skipsins með þeim afleiðingum að skipta þurfti um stóran hluta yfirbyggingarinnar, en auk þess gaf sig ásþetti með skrúfu skipsins fyrir tæpu ári síðan í Suezskurði með þeim afleiðingum að skipið var úr rekstri í marga mánuði vegna viðgerðar á skipinu. Það var þó ekki manntjón frekar en þegar kviknaði í skipinu.
Skipin af fyrri E-gerðinni, en öll heita þau nöfnum sem byrja á E urðu átta. Þau voru notuð til flutninga á milli Evrópu og Austur-Asíu, en þessi risaskip komast ekki í gegnum Panamaskurðinn, en eru hentug fyrir langsiglingarnar í austurveg. Í framhaldinu voru smíðuð nokkur minni skip af G-gerð en síðan lagðist stórskipasmíðin af í Mönkebo í Óðinsvéum.
Það var samt áfram þörf fyrir risaskip þótt Danir væru ekki lengur samkeppnishæfir við Austur-Asíu í smíði risaskipa: Þeir skoðuðu skipasmíðar í Kína, en töldu skipasmíðar þeirra ekki nógu góðar, en Kóreumenn virtust hafa tæknikunnáttuna sem þurfti og því fékk Daewoo skipasmíðastöðin það mikla verkefni að smíða tíu risaskip (síðar var samið um tíu skip til viðbótar) fyrir Mærsk sem geta borið yfir 18.270 teu´s hvert og var samningurinn gerður á svipuðum tíma og Eimskip samdi um tvö skip í Kína. Þess má geta að skipin sem Mærsk samdi um eru tæplega 400 metrar á lengd og 60 metrar á breidd og bera eins og áður er sagt, um 18270 teu´s en nýju skipin hjá Eimskip eru 140 metrar á lengd, 23 metrar á breidd og munu bera allt að 875 teu´s.
Reikna má með því að fyrra skipið hjá Eimskip verði afhent formlega einhvern næstu daganna, en þegar er búið að afhenda sex fyrstu skipin hjá Mærsk, þar af fimm sem eru komin í rekstur, en sjötta skipið, Magleby Mærsk var afhent í byrjun janúar 2014 eftir nokkra seinkun og á eftir að fara í gegnum viðamiklar reynslusiglingar áður en það fer í rekstur í næsta mánuði, en sjöunda skipið, Maribu Mærsk á að afhendast í næsta mánuði.
Ég sem fyrrum vélstjóri hjá Eimskip til margra ára er vissulega stórhrifin af þessum nýju skipum Eimskipafélagsins sem ég þjónaði í mörg ár, en hefði viljað sjá þau smíðuð á betri stað en í Kína, t.d. í Suður-Kóreu þar sem tæknikunnáttan er mun betri en í Kína. Þetta mun kosta mikla vinnu vélstjóranna fyrstu mánuðina, en vonandi ekki til framtíðar.
P.s. Meðfylgjandi mynd er frá Wikipedia.
laugardagur, janúar 11, 2014
11. janúar 2014 - Næturvaktin á Rás 2
Það er föstudagskvöld. Það er samt engin næturvakt á Rás 2. Guðni Már situr
heima atvinnulaus og spilaður er eldgamall útvarpsþáttur um eina hljómplötu,
vissulega góður þáttur sem ég hafði gaman af á sínum tíma, en enganveginn sá gagnvirki
útvarpsþáttur sem næturvaktin var.
Nú er næturvaktin á Rás 2 hætt, kannski að fullu og öllu, kannski þar til við
fáum nýjan útvarpsstjóra. Ég er ekki ánægð með þessa nýju tilhögun. Ég borga
mitt útvarpsgjald sem hækkaði um áramótin og ég er ósátt við að þeir fjármunir
renni ekki allir til útvarpsins, til Rásar 1, til Rásar 2, til sjónvarpsins.
Nokkru fyrir jól tilkynnti þáverandi útvarpsstjóri þá ákvörðun sína að segja
upp mörgum starfsmönnum RÚV þar á meðal þeim sem ég þekkti örlítið meira en í
gegnum RÚV einvörðungu, fólk á borð við Lindu Blöndal og Guðna Má Henningsson
sem jafnframt voru uppáhaldsútvarpsfólkið mitt. Linda hvarf á braut sama dag og
hún fékk uppsagnarbréfið, en Guðni Már fékk að vinna hluta uppsagnarfrestsins.
Það er skelfilegt að lenda í uppsögnum af þessu tagi sem fyrrum starfsfólk RÚV
varð fyrir. Svipuð uppsagnahrina átti sér stað á mínum vinnustað fyrir fáeinum
árum. Það var ekkert farið eftir starfsreynslu hjá fyrirtækinu. Þetta starf var
lagt niður, þessi starfsmaður hafði verið ókurteis við viðskiptavinina, þessi
var oft veikur. Sumir fengu nýja vinnu
strax, aðrir ganga enn um atvinnulausir. Þarna hurfu margir vinnufélagarnir á
brott frá fyrirtækinu, sumir eftir fleiri áratuga þjónustu við íbúa
Reykjavíkur. Nú er leiðin upp á við hjá okkur en erfiður var þessi tími. Nú
horfum við á svipaða uppsagnahrinu hjá RÚV.
Í mörg ár hefur Guðni Már verið næturvaktin á Rás 2. Hann hefur staðið vaktina
á föstudagskvöldum, en ýmsir hafa sinnt næturvaktinni á laugardagskvöldum þar á
meðal hin mjög svo geðþekka Ragnheiður Eiríksdóttir (Heiða í Unun), en síðustu
árin hefur Ingi Þór Ingibergsson séð um þá vakt. Flest eða öll hafa verið
sérlega þægileg, en Guðni Már, sem er gamall félagi minn frá fyrri tíð, þeirra
bestur.
Þessi útvarpsþáttur var slíkur að hann jók á tekjur útvarpsins á öðrum tímum
því fólk er ekki sífellt að skipta um útvarpsstöðvar. Það heldur tryggð við
sína útvarpsstöð og auglýsendur skilja slíkt og veðja á frábæra
þáttastjórnendur á borð við Guðna Má, Lindu Blöndal og Guðfinn Sigurvinsson. Nú
hefur öllum verið hent út og íslenska þjóðin er fátækari á eftir.
Að þessum persónum hefur verið sagt upp er ekki spurning um sparnað. Það er
verið að sökkva Ríkisútvarpinu af ásettu ráði. Einkavæðingin stjórnar nýrri
ríkisstjórn og RÚV er sett á brennuna. Þess vegna var útvarpsstjóranum gerð
grein fyrir því að hann væri ekki velkominn um borð um leið og hann hafði unnið
skítverkið fyrir hina nýju stjórn RÚV.
Til íslenskra kjósenda segi ég bara. Þetta kusuð þið yfir ykkur og skammist
ykkar.
föstudagur, janúar 10, 2014
10. janúar 2014 - Nýir kjarasamningar?
Ég var
á fundi um kjarasamninga hjá VM á fimmtudagskvöldið, en samkvæmt venju hafði ég
mig lítið í frammi, en hlustaði þess meira.
Á síðastliðnu hausti var sú stefna mörkuð með miklum meirihluta atkvæða
félagsmanna hjá Félagi vélstjóra og járniðnaðarmanna (VM) að vera ekki með í
samræmdum launaviðræðum Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands. Þessi
samstaða félagsmanna er eðlileg. Á sínum tíma þegar Vélstjórafélag Íslands og Félag
járniðnaðarmanna sameinuðust var mikil andstaða við sameininguna meðal
vélstjóra og vélfræðinga við inngöngu hins nýja félags í Alþýðusamband Íslands
og eftir sameiningu hafa vélstjórar og vélfræðingar dregist verulega aftur úr sambærilegum
stéttum í kjörum með samræmingu við kjör innan Alþýðusambandsins. Mikill fjöldi
vélstjóra hafa farið á skip erlendis þar sem kjörin eru langtum betri en
þekkjast á Íslandi, en þeir sem sitja eftir eru orðnir láglaunahópur með
200-350 þúsund krónur í grunnlaun eftir sjö til átta ára nám auk minnst þriggja
ára þjálfunartíma til að öðlast full réttindi sem vélfræðingar. Því kom það
okkur gjörsamlega í opna skjöldu er við fréttum um jólin að við værum með í
þessum láglaunapakka ASÍ með 2,8% launahækkun í krónum talið en kjararýrnun í
reynd.
Fyrir ári síðan hélt formaður okkar því fram, þegar bráðabirgðasamningar til
eins árs voru til umræðu, að verið væri að endurskoða launakerfið. Nú ári og
nýjum árssamningi síðar fáum við enn og aftur að heyra að það sé verið að
endurskoða launakerfið og í reynd þurfi að hækka grunnlaunin um 63% en ekki 2,8%
svo réttlætinu verði náð og samt er ætlast til þess að við samþykkjum
samningana vegna þessarar baráttu.
Ég er kannski svo heimsk að sjá ekki flísina í auganu, en ég sé bjálkann í auga
samninganefndarinnar og ég get ekki með nokkru móti séð að ég eigi að samþykkja
þessa samninga. Fundur sem var haldinn
hjá VM um samningana hjálpaði mér ekkert til að öðlast skilning á því að
samþykkja samningana.
Þvert á móti sannfærðist ég enn frekar um nauðsyn þess að fella þessa samninga,
en set spurningamerki um það hvort samninganefnd okkar hafi verið starfi sínu
vaxin til að taka þátt í samningaferlinu. Þetta mun ráða afstöðu minni við
næstu stjórnarkjör innan félagsins auk
þess sem ég mun segja nei við samningunum.
