föstudagur, júlí 13, 2007

12. júlí 2007 - Vífilsfellið einu sinni enn



Það var farið á Vífilsfellið einu sinni enn á fimmtudeginum. Til tilbreytingar var haldið frá malarnámunum í þetta sinn, en auk mín var Carina Granqvist frá Fagersta með í för.

Ferðin upp gekk vel, en þó var jarðvegurinn óþarflega þurr og og hefði mátt vera aðeins hærra rakastig í honum. Ég held meira að segja að þolið hjá mér hafi verið aðeins betra en um daginn er ég fór á Esjuna. Eftir að komið var niður aftur, var reynt að kanna það af Selvogsgötunni sem hægt var að sjá í þeirri von að hægt verði að fara Selvogsgötuna sem fyrst og fyrir haustrigningarnar. Carina þurfti einnig að kynna sér Kleifarvatnið enda er sú ágæta bók á sænsku á náttborðinu hennar og kjörið tækifæri til að kynna sér aðstæður.

Eftir Kleifarvatnið var rennt að ættaróðalinu í Herdísarvík (Langalangamma mín fæddist þar hundrað árum áður en Einar Ben dó). Ekki get ég þó metið af aðstæðum hvort gamli bærinn var þar sem rústir eru í dag, rétt austan við núverandi íbúðarhús og þar sem Einar Ben eyddi síðustu ævidögunum, en það hús var byggt eftir 1910 (ég veit ekki hvenær).

http://public.fotki.com/annakk/gnguferir-2007/vfilsfell-12-jl-2007/

-----oOo-----

Af gefnu tilefni vil ég taka fram að ég mótmælti orðum í viðtali við mig sem var tekið á mánudag en birtist í Blaðinu á fimmtudag.Blaðakonan virtist taka mótmæli mín til greina í símtali á þriðjudag, en síðan var öllu snúið á hvolf þegar viðtalið birtist loksins. Ég er í öskrandi fýlu út í Blaðið eftir þessa meðferð.

Nú skil ég betur hvers vegna Blaðið var ekki borið í hús til mín á fimmtudagsmorguninn.


0 ummæli:







Skrifa ummæli